Reir Verk ehf. er að byggja nýtt fjölbýlishús við Þorraholtið. Húsið verður þriggja til fjögurra hæða með samtals 49 íbúðum. Samsetning íbúða er þannig að 9 íbúðir eru 2ja herbergja, 36 íbúðir 3ja herbergja og svo 4 þakíbúðir sem eru 3- 4 herbergja. Í bílageymslu undir húsinu verða 42 bílastæði með tengimöguleikum fyrir hleðslu rafbíla.
Staðsetningin er frábær fyrir alla þá sem njóta góðrar útiveru þar sem Vífilstaðavatn og Heiðmörk er í næsta nágrenni og fyrir golfáhugafólk er Vífilstaðavöllur í göngufæri. Stutt er í verslun og þjónustu þar sem Smáralindin er steinsnar frá ásamt fjölda sérverslana í næsta nágrenni. Helsta stofnbraut höfuðborgarsvæðisins, Reykjanesbraut, liggur neðan við hverfið og þá munu almenningssamgöngur verða um holtið með stoppistöðvar á Vetrarbrautinni.
Öll samskipti eru vistuð í gagnagrunni okkar. Sjá nánar um meðferð persónuupplýsinga hér